þriðjudagur, 23. apríl 2013

Jæja það er spenna í mér í dag ... gærkveldið var erfitt og ég vaknaði þung í morgun. En fór í Damið að sjálfsögðu og svo var dagurinn búinn nánast

Er að fara hitta sálfræðinginn minn á morgun og svo á fundinn í Hringsjá Er virkilega spennt að sjá hvað kemur útúr því. Hvort að ég geti byrjað í haust eða hvað.... spennandi

skottið mitt ætlar að heimsækja mömmu sína á morgun .... ég hlakka svo til að hitta hana. Það er erfitt að vera án stelpnanna og hitta þær svona lítið. En svona er lífið.

Góða nótt ... Kv. Hafdís

Engin ummæli: