Já hann byrjaði með svaka hjartslætti og hausverk. Er engan vegin að höndla að vera ein heima með skottið. Ég var passlega búin að jafna mig þegar að hún vaknaði.
Kíkti við hjá Hörpu eftir að hafa farið með skottið í leikskólann en það er sko sveitaferð hjá þeim í dag. Veit ekki hvað er orðið langt síðan að ég hef farið til hennar og hún býr nánast í þarnæsta húsi !
Svo er ég að fá stelpu til að þrífa fyrir mig á eftir það er sko móðir bekkjasystir Öddu Steinu lítill er heimurinn. Var voðalega fegin að vita hver kæmi. Nú er ég búinn að vera í kvíðakasti yfir því að hún sé að koma. Gengur illa að höndla það að þiggja þessa þjónustu. Maður verður svo vanmáttugur eithvað. Eins og ég væri orðið löggilt gamalmenni. En þessa dagana á maður að þiggja alla þá hjálp sem maður fær og hana nú.
Ég ætla að fara með hana Lúnu mína niður að vita á meðan og leyfa tárunum aðeins að renna.
Kv. Hafdís
Engin ummæli:
Skrifa ummæli