þriðjudagur, 29. janúar 2013

Er svoldið döpur í sálinni í dag. Finn að það er að færast yfir mig smá myrkur og kvíði. Nú eru 3 dagar í útskrift. Veit ekkert hvað ég mun til bragðs taka þegar að það er búið. Eftir 5 vikur fer ég á námskeið sem er einu sinni í viku en síðan er það lítið. Hitti væntanlega sálfræðinginn og geðlækninn minn. Áhuginn er mjög takmarkaður. Byrjaði að spá í að hekla teppi í gær og fór og keypti nokkrar dokkur af garni. Akkúrat núna get ég ekki hugsað mér að byrja. Þetta er hræðilegt að vera í þessari stöðu. Það er prjónaklúbbur í kvöld og ég er ekki viss um að ég treysti mér að fara. Ekki eins og líðanin er akkúrat núna. Í gær var ég readdí en í dag ..... Ég þoli ekki þessar sveiflur framm og til baka. Varð að fá að pústa.
Kv. Hafdís