þriðjudagur, 19. mars 2013

Dagurinn í dag

Er döpur í dag ... sakna nærveru fólksins í kringum mig er ekki nógu sterk til að fara og hitta nýtt fólk

Efast um þá hluti sem ég er að gera.

 Veit ekki með Reykjalund finnst ég vera að taka pláss frá einhverjum sem er meira tilbúinn en ég. Finnst þetta vera alltof langt prógramm ég er ekki góð í langhlaupi og hef ekki mikla þolinmæði. Prógrammið getur tekið um 2 ár !

Er að fara mæta í 2 skiptið í DAM hópinn á Hvíta bandinu. Veit ekki alveg hvað mér finnst um þetta. Er með þá tilfinningu að ég sé að taka pláss frá einhverjum.

Sálin er svoldið brotin er að brotlenda illa. Veit ekki alveg hvernig næstu dagar verða en það verður í það minnsta 15 mín reglan hjá mér.

Lífið í dag .... Hafdís