þriðjudagur, 12. mars 2013

Jæja þá er mánudaginn búinn og þriðjudagurinn að taka við. Þetta mjakast hægt en örugglega. Í gær fór ég niðrá TR til að sækja um heimilisuppbót. tékk ! skellti mér líka í símabúð endaði á að fara út með sjónvarp símans pakkann, gsm í áskrift og frábæran sölumann sem að visu fylgdi ekki með því miður.
Skellti mér líka í Góða hirðirinn og ætlaði að ath með nýja fjarstýringu fyrir sjónvarpið. Var ekki svo heppin en gekk engu að síður út með smá bland í poka !
Semsé verslunarflippinu ætlar aldrei að ljúka ! Þarf að fara að finna peningaskynsemina aftur !!!!
Í dag er ég að fara til Sála og svo strax á eftir byrja ég í Dam framhaldsnámskeiði tími 1. Er með smá kvíða að fara í nýjan hóp en mun þekkja allavegana 1 þannig að það er frábært.
Á morgun er erfiður fundur hjá mér hjá Reykjavíkur borg. Er að fara sækja um sérstakar húsaleigubætur ... þarf semsé að sækja um en veit að mér verður hafnað vegna þess að ég hef ekki búið í Reykjavík í samfellt 3 ár. En þarf að fara í þetta ferli til að geta sótt aftur um en með séstökum undanþágum þó.
Ætla að hitta yndislegu gyðjurnar mínar ef að ég þekki þær rétt þá munum við gleyma tímanum frammeftir öllu. En það er bara yndislegt.
jæja ætla að láta þetta duga að sinni ....
að lokum er hér ein mynd sem er tekin niðrá Breið