sunnudagur, 24. mars 2013

Jæja ... það var rétt hjá mér. Ég brotlenti á þriðjudaginn endaði uppá deild í smá slökun og var þar í 2 daga.

Það var gott að komast inn til að vinda ofanaf sér. Verð að viðurkenna að ég er farin að líta innlagnir öðrum augum í dag en ég gerði.

Helgin var bara nokkuð busy. Ferming hjá Sigga bróðir. Þannig að það var stúss ... því miður 2 svefnlitlar nætur þannig að ég þarf aðeins að tiptóa núna og reyna að sofa almennilega. Það skipti öllu máli.

Vikan en nokkuð róleg. Adda Steina er að fara með pabba sínum á Akureyri á morgun og verður í viku. Þannig að það þýðir vika í rólegheitum hjá mér. Er reyndar að fara á Hvíta bandið á þriðjudaginn þannig að það er smá plan í það minnsta.

Annars er sálin nokkuð góð miða við. Planið er að halda henni þannig takk :)