fimmtudagur, 4. apríl 2013

Jæja þá eru páskarnir búnir

Átti yndislega rólega páska .. gerði minna en ekki neitt. Enda enginn í bænum.

Skellti mér á ball með Fríðu á páskadag. Dansaði af mér skóna en það var ball með síðan skein sól. Hef ekki farið á djammið síðan guð má vita. Svei mér þá ef að ég kann þetta ekki ennþá. Fékk mér meirað segja í glas. Sem væri svosem ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að ég hef ekki drukkið á þessu ári. Hef ekki lagt í að drekka á þessum lyfum sem ég er á. En ég stóð það af mér en ekki hvað. Verð að viðurkenna að þetta var svoldið nice að ná aðeins að slaka sér. Efa að ég hefði getað verið edrú á ballinu .. fannst óþægilegt að koma þarna inn. Maður er svo skrítin.

Skottið mitt er búin að koma til mín síðan að hún kom frá Akureyri. Það var yndislegt að fá skottin mín heim aftur. Búið að vera hálf einmannalegt að vera svona ein í bænum. Hlakka til helgarinnar en þá verður skottið hjá mér. Fyrsta heila helgin sem að ég ætla að taka hana. Skrefin eru að stækka hjá mér. Enda mikill munur á sveiflunum á mér.

Jæja læt þetta duga að sinni.

Kv. Hafdís