fimmtudagur, 11. apríl 2013

Lífið er svoldið skrítið þessa dagana ....

Addan mín er hjá mér í 2 nætur þannig að það þýðir svefnlitlar nætur .... er ekki alveg að ná að halda jafnvægi þessa dagana. Það vill til að það verður barnlaus helgi um helgina þannig að það verður sofið út 4 sure ! Eða reynt það.

Ég er að fara í viðtal í Hringsjá í næstu viku og það er verið að fara sækja um skólavist vonandi fyrir haustið. Ég er mjög spennt og hlakka til að sjá hvað verður. Seinkast um eina viku því miður.

Ég er búin að setja Reykjalund á HOLD .... sveiflurnar eru búnar að vera of miklar þannig að þetta var skynsamlegt. Enda prógramm sem er í 2-2.5 ár.

Svo er ég voðalega dugleg að flækja lífið þessa dagana

Kveðja Hafdís